Fjölskyldan Blikabraut 9 Reykjanesbæ.

05.09.2010 12:59

Ljósanótt



Þá er Ljósarnæturhelginni að ljúka og erum við Ágúst að gera okkur klár fyrir að fara í Grifjuna og horfa á úrslitarleikina í Reykjanes cup mótinu í körfu karla. Við byrjuðum þessa helgi með því að horfa á stelpurnar á körfuboltamóti Kosts og ætlum að enda hana á körfubolta, bara viðeigandi. Ég kíkti með Ágústi niður í bæ á föstudagskvöldið. Hann hitti svo vini sína og ég fór að rölta á sýningar. Hún Silvía vinnufélagi minn var með myndlistasýningu svo ég kíkti til hennar og færði henni blóm og óskaði henni til hamingju með áfangann. Um 23:00 náði ég í Ágúst og við fórum heim. Þórólfur flutti út þennan sama dag í flotta íbúð uppá Ásbrú. Hann er byrjaður á fullu í skólanum og er það gott mál. Það var nú ekki flott veðrið á laugardaginn en maður lét sig hafa það og fór aftur á röltið síðan fórum við Ágúst út að borða Þ.e.a.s það var svo fullt á veitingastaðnum að við ákváðum að taka matin bara með okkur heim svo að utanbæjar fólk gæti frekar fengið sæti. Um kvöldið fórum við svo niður í bæ, Ágúst hitti vini sína og fór með þeim en ég hlustaði á þær hljómsveitir sem tróðu upp á stóra sviðinu. Á þessum tímapunkti var komið hundleiðinlegt veður, hávaða rok og rigning. Ég var alveg að gefast upp og var að hugsa um að fara heim veðrið var svo leiðinlegt en viti menn allt í einu um 22:00 datt allur vindur niður, það hætti að rigna og himininn ruddi öllum skýjum í burtu svo að maður sá í heiðan himininn og stjörnurnar. Flugeldasýninginn var frábær og hef ég ekki séð jafn flotta sýningu ever. Við Ágúst hittumst svo og röltum aðeins um Hafnargötuna en héldum svo heim um miðnætti.



Þessar myndir tók María Guðmundsdóttir facebook vinkona mín af flugeldasýningunni


Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 23
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 52798
Samtals gestir: 10847
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 17:47:39

Vafraðu um

Nafn:

Margrét S Þórólfsdóttir

Farsími:

6902416

Afmælisdagur:

20. janúar 1961

Heimilisfang:

Blikabraut 9.

Staðsetning:

230 Reykjanesbæ.

Heimasími:

4211229

Tenglar

clockhere